Magnaðir hlutir að gerast hér. Ef þú ferð þarna inná þá sérðu grein um nýjustu pilluna sem er á leiðinni. Líkamsræktarpillan maar. The excercise pill. Þeir eru búnir að ná þannig árangri með þetta að ef þeir gefa fullorðinni mús þetta þá byrjar hún að brenna fitu eins og hún sé að æfa á fullu. Það verður gaman þegar ég labba í Apótekið og fæ eitt stykki ‘Fitness í flösku’. Svo hámar maður í sig pillur og verður illa köttaður. Hins vegar er einhvern veginn minna gaman að lúkka skraddaður ef maður hefur ekki haft fyrir því sjálfur. Lítið sense of accomplishment…nema fyrir teymið í hvítu sloppunum sem uppdópuðu 1,5 milljón mýs áður en þeir náðu að fullkomna blönduna svo sófakartöflur heimsins geti átt sjens í að lúkka aftur. Jæja. Nóg um það.

En á morgun er svo leikurinn okkar. Úrslitaleikur Vals og FH í Lengjubikarnum. Leikurinn er á Stjörnuvellinum á morgun kl 16. Og sem ég lít út um gluggann í vinnunni hér og sé yfir Borgartún og alla leið út á Akranes þá líst mér vel á að fá að spila í súrefninu. Trén fyrir utan hreyfast varla og mikið skelfingar ósköp væri gaman ef maður gæti pantað svona veður fyrir morgundaginn líka. That would be cool wouldn’t it.
Oh, well. Andgift þrotin.
Friður. Virðing.

